01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jason Roberts til Portsmouth. (Staðfest)

Jason Roberts.


Jason Roberts.

Framherjinn Jason Roberts mun leika með Portsmouth út þetta tímabil á lánssamningi frá W.B.A. Roberts sem er 25 ára hafnaði því að fara til Wigan fyrir 2,25 milljónir punda. Leicester City var einnig á eftir kappanum en hann ákvað að fara til Porstmouth. Portsmouth getur hinsvegar ekki fengið Ian Harte á láni frá Leeds því að liðið má aðeins hafa 2 lánssmenn og Alexei Smertin er einnig í láni frá Chelsea. Roberts er ætlað að fylla skarð Svetoslav Todorov en hann mun ekki leika meira með á tímabilinu vegna meiðsla.
