01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
De Los Santos til Atletico Madrid. (Staðfest)

Gonzalo De Los Santos.


Gonzalo De Los Santos.

Atletico Madrid hefur fengið Gonzalo De Los Santos á lánssamningi frá Valencia út leiktíðina. De Los Santos sem er 27 ára miðjumaður er Úrúgvæi. Hann hefur lítið fengið að spila hjá Valencia og fór því til Atletico. Hann sagðist ætla að sanna sig fyrir þjálfara Atletico og æfa mjög vel.
