01.09.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Konchesky til Tottenham (Staðfest)

Paul Konchesky kominn til Spurs.


Paul Konchesky kominn til Spurs.

Varnarmaðurinn Paul Konchesky er kominn til Tottenham á lánssamningi frá Charlton. Hann verður í mánuð á White Hart Lane en Chris Perry mun í skiptum vera á Valley í mánuð og spila með Charlton. Konchesky er annar leikmaðurinn sem framkvæmdarstjóri Tottenham, Glenn Hoddle, krækir í skömmu fyrir lokun félagaskiptagluggann en hinn er miðjumaðurinn Stephane Dalmat sem kemur í láni frá Inter Milan.
Konchesky var settur á sölulista hjá Charlton að hans eigin ósk fyrr í sumar þar sem hann vildi fá að spila meira. Konchesky sagðist vilja spila í vinstri bakverði til að auka líkurnar á að komast í enska landsliðið en var í staðinn tekinn út úr liðinu hjá Charlton. Hann gagnrýndi síðan Alan Curbishley stjóra Charlton harkalega fyrir að neita lánstilboðum í hann.
Perry er miðvörður og mun styrkja vörn Charlton í meiðslum Richard Rufus.
Perry er miðvörður og mun styrkja vörn Charlton í meiðslum Richard Rufus.
