01.09.04 - 16:56
Elvar Geir Magnússon
Wayne Andrews til Crystal Palace (Staðfest)




Crystal Palace heldur áfram að styrkja hópinn og liðið hefur nú gengið frá kaupum á Wayne Andrews sóknarmanni Colchester. Miðjumaður Palace, Gareth Williams, fer til Colchester sem hluti af samningnum. Andrews er 26 ára og kom upp úr unglingabúðum Watford. Þaðan fór hann víða, til Cambridge, Peterborough, Oldham og utandeildarliðsins sívinsæla St Albans. Hann kom til Colchester síðasta sumar og lék 56 leiki, skoraði 16 mörk.
