Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 01. desember 2019 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martin átti í vandræðum með að borða fyrir leikinn
David Martin.
David Martin.
Mynd: Getty Images
David Martin, markvörður West Ham, hefur greint frá því að hann átti í vandræðum með að borða í tvo daga fyrir leikinn gegn Chelsea sem fram fór í gær.

Hann stóð í rammanum og stóð sig vel er West Ham vann 1-0 útisigur á Chelsea.

Hinn 33 ára gamli Martin spilaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni. Hann var eitt sinn á mála hjá Liverpool, en var ekki aðalmarkvörður þar. Hann hefur undanfarin ár leikið í B- og C-deild á Englandi, en í dag fékk hann loksins stóra tækifærið í úrvalsdeildinni.

Hann var fenginn til West Ham fyrir þetta tímabil og kom hann inn í liðið í gær fyrir Roberto, sem hefur ekki heillað með frammistöðu sinni. Lukas Fabianski, aðalmarkvörður West Ham, er meiddur.

„Það er eins og þetta sé ekki raunverulegt," sagði Martin við Sky Sports eftir leikinn.

„Ég hef átt ágætan feril og spilað gott magn leikja, en það undirbýr þig ekki fyrir leik sem þennan."

„Ég hef verið í vandræðum með að borða síðustu tvo daga. Cress (Aaron Cresswell) hefur mikið hlegið að mér því diskurinn hefur alltaf verið tekinn í burtu frá mér án þess að ég hafi getað klárað."

Eftir leikinn féll Martin til jarðar og grét. Liðsfélagar hans voru fljótir að hlaupa í áttina að honum.

Hann fagnaði sigrinum með liðsfélögum sínum, en hljóp svo upp í fjölmiðlabox þar sem faðir hans, Alvin, var. David faðmaði föður sinn innilega.

Alvin Martin spilaði með West Ham í um 20 ár sem leikmaður og það var væntanlega gaman fyrir hann að sjá son sinn spila fyrir félagið.

„Þegar ég sá pabba þá vorum við báðir í tárum þannig að við sögðum ekki mikið við hvorn annan. En að hann skyldi vera hérna þegar ég spilaði minn fyrsta leik fyrir félagið sem hann spilaði fyrir í 21 ár, að hann skyldi sjá mig halda hreinu og okkur vinna leikinn, það er stórkostleg tilfinning."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner