02.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ricketts til Bolton (Staðfest)

Sam Allardyce stjóri Bolton.


Sam Allardyce stjóri Bolton.

Bolton hefur fengið markmanninn Donovan Ricketts frá Villagea United á láni út þetta tímabil. Bolton getur keypt Ricketts í sumar á 200 þúsund pund ef að hann stendur sig vel. Kappinn er landsliðsmaður hjá Jamaiku og mun hann fara beint inn í leikmannahóp Bolton sem leikur við Tranmere í enska bikarnum á morgun.
Sam Allardyce stjóri Bolton vonast einnig til að fá sóknarmanninn Javi Moreno frá Atletico Madrid á næstunni en "stóri Sam" þarf alltaf að spyrja eiganda liðsins Eddie Davies hvort að til séu peningar fyrir þeim leikmönnum sem að hann hefur augastað á.
