02.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Michael Brown til Tottenham. (Staðfest)

Tottenham hafa tilkynnt kaup á Michael Brown framherja Sheffield United en talið er að kaupsamningurinn sé 500 þúsund pund. Brown sem er 26 ára gamall mun ekki gefa spilað með Tottenham fyrr en 17. janúar næstkomandi vegna leikbanns.
Neil Warnock stjóri Sheffield United sagði: ,,Browny fer með okkar blessun. Auðvitað sjáum við eftir að hann spili ekki með okkur en vonum að hann geti snúið gengi Spurs við. Við höfum verið góðir við hvorn annan og ég er viss um að hann muni leika stórt hlutverk í því að Spurs stígi upp töfluna."
Michael Brown sló í gegn í fyrra er Sheffield United komst í undanúrslit beggja bikarkeppnanna í Englandi. Hann skoraði 22 mörk með félaginu í fyrra en í heildina skoraði hann 28 mörk í 142 leikjum.
Á sama tíma og Tottenham tilkynnti félagsskipti Brown sögðu þeir einnig frá því að ólíklegt sé að Brasilíumaðurinn Diego komi til félagsins.