02.02.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Michael Bridges til Newcastle. (Staðfest)
Félagsskiptaglugginn lokar nú klukkan 17:00 í dag og út um allt eru menn með pennann á lofti að reyna að ljúka samningum í tæka tíð. Newcastle United gekk frá þriggja mánaða lánssamningi á Michael Bridges framherja Leeds United. Bridges gekk í raðir Leeds United frá Sunderland árið 1999. Hann skoraði 22 mörk á sinni fyrstu leiktíð en hefur síðan átt í basli með meiðsli. Hann hefur aðeins einu sinni verið í byrjunarliði á þessari leiktíð og komið 5 sinnum inná sem varamaður. Hann hefur líklega leikið sinn síðasta leik fyrir Leeds en samningur hans við félagið rennur út í sumar.
