02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Thomas til Charlton (Staðfest)




Charlton hefur keypt kantmanninn Jerome Thomas frá Arsenal á 100 þúsund pund. Thomas sem er tvítugur hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Charlton. Á opinberri heimasíðu félagsins sagðist hann vera spenntur fyrir því að byrja að leika með Charlton og bætti við að hann hefði getað farið í önnur lið en að hann hafi virkilega viljað koma til Charlton.
