02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
LuaLua og Curtis til Porstmouh (Staðfest)

LuaLua með boltann.


LuaLua með boltann.

Portsmouth hefur fengið sóknarmanninn Lomana LuaLua að láni frá Newcastle í þrjá mánuði. Hinum 23 ára LuaLua var boðið að fara til Leeds á láni en eftir að hann neitaði því var Harry Redknapp stjóri Portsmouth ekki lengi að krækja í kappann. Talið er að Portsmouth hafi borgað Newcastle 100 þúsund pund fyrir að fá LuaLua að láni og þá geti Portsmouth einnig keypt kappann í lok tímabilsins. LuaLua hefur flogið aftur til Englands eftir að hafa verið að leika með Kongó á Afríkumóti landsliða.
Portsmouth hefur einnig fengið varnarmanninn John Curtis frítt frá Leicester City. Hinn 25 ára Curtis hefur skrifað undir eins og hálfs árs samning við Portsmouth.
