02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Yakin til Stuttgart (Staðfest)

Stuttgart hefur keypt miðjumanninn Hakan Yakin frá Basel á 1,7 milljónir punda en við greindum frá því í gær að Yakin væri við það að fara til þýska liðsins. Yakin sem er 26 ára hittir fyrrum samherja sinn Marco Streller hjá Stuttgart en liðið keypti Streller í síðasta mánuði frá Basel á tvær milljónir punda. Yakin skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Stuttgart og er hann nú farinn endanlega farinn frá Basel en tvívegis á hálfu ári hefur hann verið ótrúlega nálægt því að fara frá liðinu.
Síðastliðið sumar var hann búinn að skrifa undir samning við PSG en ákvað að fara í aðgerð á nára og því fékk PSG samning hans ógildan þar sem að liðið vissi ekki af þessum meiðslum kappans. Í síðustu viku var hann svo nálægt því að ganga til liðs við tyrkneska liðið Fenerbache en það gekk til baka á síðustu stundu.
Yakin er ekki löglegur með Stuttgart í Meistaradeildinni þar sem hann hefur spilað með Basel í Evrópukeppninni á leiktíðinni
Murat, eldri bróðir Hakan, lék fyrir Stuttgart 1997 og það hefur væntanlega haft sitt að segja um að hann ákvað að fara til Stuttgart. Gefum Hakan Yakin orðið "Eftir níu ár í Sviss vildi ég breyta til. Stuttgart á bjarta framtíð og getur hlakkað til næstu ára og mig langar að vera með í þessu uppbyggingarstarfi."