02.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Stead til Blackburn (Staðfest)

Stead hefur skorað mikið á tímabilinu og hér fagnar hann einu marka sinna.


Stead hefur skorað mikið á tímabilinu og hér fagnar hann einu marka sinna.

Blackburn hefur keypt sóknarmanninn Jonathan Stead frá Huddersfield en kaupverðið fékkst ekki uppgefið en það er þó meira en ein milljón punda. Stead sem er tvítugur hefur farið á kostum með Huddersfield í ensku þriðju deildinni og skorað 18 mörk á tímabilinu. Blackburn hefur verið á eftir Stead í nokkurn tíma og er talið að Huddersfield hafi ekki samþykkt tilboð Blackburn fyrr en Graeme Souness stjóri liðsins bauð í Stead í fjórða sinn. Stead var einnig undir smásjá Sunderland en Blackurn krækti í kauða sem að hefur skrifað undir samning til fjögurra og hálfs árs.
