02.02.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Otsemobor til Bolton (Staðfest)




Jon Otsembor varnarmaður Liverpool gekk í dag í raðir Bolton Wanderers á lánssamningi út leiktíðina. Otsembor lék fimm leiki með Liverpool á leiktíðinni og vakti mikla lukku stuðningsmanna félagsins. Hann missti svo sæti sitt í kjölfar þess að reyndari leikmenn komu úr meiðslum og hefur ekki leikið með liðinu síðan um jólin. Lánssamningur hans við Bolton rennur úr 30. júní næstkomandi. Hann má ekki spila úrslitaleikinn í Carling Cup þar sem hann hefur þegar leikið með Liverpool í þeirri keppni. Otsembor var í fjölmiðlum í fyrra er hann var skotinn í rassinn á skemmtistað og síðar þegar bíll hans var fylltur af flugeldum og kveikt í.
