Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. febrúar 2023 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið hjá Degi Dan - „Absolute banger"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Dan Þórhallsson skoraði fyrsta mark sitt fyrir bandaríska félagið Orlando City í 2-0 sigri á Minnesota United í æfingaleik í gær en það var af dýrustu gerð.

Orlando landaði Degi frá Breiðabliki fyrir tveimur dögum og aðeins sólarhring síðar skoraði hann í sínum fyrsta leik.

Dagur hamraði boltanum fyrir utan teig í vinstra hornið, alveg óverjandi fyrir markvörð Minnesota.

Fínasta byrjun hjá Íslendingnum og lofar framtíðin góðu en markið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner