02.04.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Kristján Jóhannsson til Njarðvíkur (Staðfest)


Mynd: Merki


Mynd: Merki
Njarðvík hefur fengið góðan liðsstyrk því að þeir hafa krækt í Kristján Helga Jóhannsson frá grönnum sínum í Keflavík. Kristján lék alla 18 leiki Keflavíkur í fyrstu deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim tvö mörk. Hann var byrjunarliðsmaður í liðinu og spilaði í vinstri bakverði svo það kemur nokkuð á óvart að hann skuli fara niður um deild núna og til Njarðvíkur.
