Fyrsta skotmark De Zerbi - Man Utd fylgist með miðverði Benfica - Kofane til Arsenal - Hvað verður um Kounde og Dumfries?
   fim 02. apríl 2026 14:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðni segir aðstæður á Kópavogsvelli óboðlegar: Þetta er bara galið
Kvenaboltinn
Af Kópavogsvelli í dag.
Af Kópavogsvelli í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: RÚV/Skjáskot
„Þetta eru ekki boðlegar aðstæður, það er ekkert „sexy" við þetta. Það hefur verið vitað í langan tíma að veðrið gæti skollið á með þessum hætti sem það er búið að gera núna."

„Ég veit að það á að hreinsa völlinn, en aðstæður eru hættulegar. Ef þessi leikur á að fara fram, þá er eins gott að leikmenn meiðist ekki korter í mót. Hvorki hjá FH-liðinu né Blikaliðinu, þetta er bara galið,"
sagði Guðni Eiríksson, þjálfari kvennaliðs FH, pirraður í viðtali við RÚV fyrir leikinn gegn Breiðabliki.

Leikurinn átti að hefjast klukkan 14:00 en hann var snævi þakinn og þarf að hreinsa snjóinn af gervigrasinu - á meðan kyngir niður meiri snjó. Áætlað er að leikurinn hefjist 14:15.

Liðin eru að mætast í Meistarakeppni KSÍ. Breiðablik vann bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn í fyrra og FH endaði í 2. sæti í báðum keppnum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  0 FH

Leikurinn er í beinni útsendingu á RÚV og í textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Slapp
banner
banner