Solanke á sölulista hjá Tottenham - Tilboðum Tottenham og Man Utd í Semenyo hafnað - Tottenham á eftir Samu
Ragnar Bragi: Sýnir að klúbbnum sé alvara
Heimir setur titlasöfnun til hliðar: Núna er að búa til eitthvað
Jökull: Endar ekki í efstu þremur nema hafa unnið fyrir því
Örvar tvöfaldaði markafjölda sinn: Ég var óheppinn þá
Höskuldur: Hefur verið geðshræringavika
Ólafur Ingi: Eins og þú sérð þá er þetta frábært lið
Pablo Punyed um framtíðina: Það kemur í ljós
Matti Villa: Geggjaður endir á frábæru tímabili og mínum ferli
Sölvi um Pablo og Matta Villa: Þetta eru algjörir sigurvegarar
Túfa um Val: Miðað við allt sem ég er búinn að gera á ég þetta ekki skilið
Aron Sig stendur við ummæli sín: Sjá allir að við erum að fara taka yfir
Elmar Atli sár og svekktur: Að taka þessa ákvörðun í þessari stöðu er óskiljanlegt
Var afskaplega drjúgur fyrir KR í úrslitaleikjunum
Luke Rae um hasarinn: Það var ekkert alvarlegt
Eiði Aroni fannst liðið gefast upp - „Ekki sjón að sjá okkur eftir bikartitilinn"
Tilfinningarnar báru Hrannar ofurliði
Óskar Hrafn: Skrifað í skýin að við fengjum þetta verkefni til að leysa
Björn Daníel leggur skóna á hilluna: Blóðið orðið svart og hvítt
Rúnar: Það mun vera í sögubókunum
Maggi: Opinn fyrir því að halda áfram
   sun 02. maí 2021 22:29
Sverrir Örn Einarsson
Siggi Raggi: Það vantar alltaf einhverja
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar af þjálfurum Keflavíkur.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar af þjálfurum Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er bara að svekkjandi að tapa þessum leik. Mér fannst óþarfi að tapa honum, við fengum fullt af góðum færum, sköllum í samskeytin og frábær markvarsla í nokkur skipti og við erum vanir að nýta þessi færi aðeins betur,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson annar af þjálfurum Keflavíkur eftir 1-0 tap Keflavíkur gegn Víkingum fyrr í kvöld.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 -  0 Keflavík

Fyrri hálflekur hjá Keflavík í kvöld verður að teljast slakur en þeir bitu í skjaldarrendur og komu ákveðnari til leiks í þeim síðari þó tap hafi orðið niðurstaðan.

„Já við vorum seinir í gang og á móti vindi. Víkingarnir eru líka mjög góðir í að halda boltanum eitt besta lið deildarinnar í því og við vorum í erfiðleikum með að klukka þá. Þeir spiluðu mjög vel og spiluðu hratt á milli sín. En við gátum samt gert betur oft á tíðum.“

Talsvert er um meiðsli í herbúðum Keflavíkur en um það sagði Siggi.

„Það vantar alltaf einhverja og vantar hjá þeim líka og þannig er bara fótboltinn. Það eru yfirleitt 2-3 meiddir og þeir sem fá tækifæri í staðinn verða bara að standa sig og menn svara með frammistöðu inn á vellinum. VIð reynum bara að læra af þessum leik og gera betur í þeim næsta.“

Sagði Siggi Raggi en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner