Fotbolti.net
26.06.26 - 04:16
Brynjar Ingi Erluson

HM: Dramatískur sigur í uppbótartíma - Ástralía áfram

Tyrkir unnu lokaleik sinn en sigurinn kom of seint

Tyrkir unnu lokaleik sinn en sigurinn kom of seint

Canon

Mynd: EPA

Ástralía fylgir Bandaríkjunum í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir markalaust jafntefli gegn Paragvæ í lokaumferð D-riðils í nótt. Paragvæ þurfti að sætta sig við þriðja sætið en er að öllum líkindum einnig á leið áfram sem ein af átta bestu þjóðunum í þriðja sæti.
Níu breytingar voru gerðar á liði Bandaríkjanna fyrir leikinn gegn Tyrkjum sem vissu fyrir leik að þeir ættu ekki lengur möguleika á að komast áfram.

Auston Trusty, sem kom inn í byrjunarlið Bandaríkjanna, skoraði eftir aðeins þrjár mínútur.

Hann var aleinn á fjærstönginni eftir hornspyrnu, fékk boltann í lappirnar og hamraði honum í netið.

Tyrkir ætluðu hins vegar ekki að láta niðurlægja sig gegn mikið breyttu liði Bandaríkjanna. Arda Guler, leikmaður Real Madrid, jafnaði með sínu fyrsta marki á HM þegar hann skoraði af stuttu færi.

Orkun Kokcu kom Tyrkjum svo yfir eftir rúman hálftíma þegar hann skoraði úr miðjum teignum eftir gott samspil.

Tyrkir höfðu átt 62 skottilraunir í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu án þess að skora en nýttu svo fyrstu tvær tilraunir sínar í lokaleiknum. Skilvirknin lét loksins sjá sig en allt of seint fyrir þá.

Forysta Tyrkja var verðskulduð í hálfleik en Bandaríkjamenn fengu samt ágæt færi undir lok fyrri hálfleiks. Trusty fékk þá annað færi eftir hornspyrnu en skallaði boltann yfir markið.

Staðan var 2-1 í hálfleik en heimamenn voru ekki lengi að jafna metin í síðari hálfleik.

Það gerði Sebastian Berhalter, sonur Gregg Berhalter, fyrrum landsliðsmanns og þjálfara Bandaríkjanna. Sebastian skoraði með föstu skoti rétt fyrir utan teig sem skoppaði af grasinu og hafnaði neðst í vinstra horninu.

Christian Pulisic kom inn af bekknum og tókst að gera meira á fyrstu mínútunum en Timothy Weah hafði gert fyrstu sextíu mínúturnar. Pulisic kom sér í tvö frábær færi, þó það seinna hafi varla verið færi þar sem hann fékk boltann frekar óvart í sig, en Ugurcan Cakir varði meistaralega í bæði skiptin.

Sigurmarkið kom svo á áttundu mínútu í uppbótartíma. Sókn Tyrkja var vel útfærð, boltinn kom frá hægri vængnum og út fyrir teig áður en honum var vippað inn fyrir vinstra megin. Boltinn fór af varnarmanni og til Kaan Ayhan sem sparkaði honum í netið.

Þetta var fyrsta tap Bandaríkjanna á mótinu og um leið fyrsti sigur Tyrkja, sem skilaði þeim þó engu. Þeir höfnuðu í neðsta sæti riðilsins á meðan Bandaríkin tóku toppsætið með sex stig.

Ástralía og Paragvæ sættust á að deila stigunum

Ástralía og Paragvæ gerðu markalaust jafntefli í leik sem hentaði báðum liðum ágætlega.

Það var ljóst fyrir fram að leikurinn yrði lokaður, enda mikið undir hjá báðum þjóðum.

Ástralir voru líklegri í fyrri hálfleik og sköpuðu sér nokkur ágæt færi á meðan Paragvæ virtist fyrst og fremst mæta til að sækja stigið.

Jackson Irvine átti hörkuskot snemma leiks sem var varið aftur fyrir endamörk. Ástralir voru með öll völd á vellinum en náðu ekki að skapa sér mikið af opnum færum. Næsta stórhætta kom þegar Cristian Volpato átti hörkuskot sem var varið út í teiginn.

Staðan var markalaus í hálfleik eftir leik sem var stál í stál. Paragvæ kom öflugra inn í síðari hálfleikinn og náði að skapa sér nokkur ágæt færi.

Leikurinn lokaðist þó aftur þegar leið á síðari hálfleikinn. Vængbakvörðurinn Jordan Bos var líklegastur til að stela öllum þremur stigunum fyrir Ástralíu undir lokin og fékk tvö færi til þess. Fyrra skotið var laust og beint á markvörð Paragvæ en það síðara fast skot sem flaug rétt framhjá.

Bæði lið fengu dauðafæri í uppbótartíma. Mauricio setti skot sitt beint á Patrick Beach í marki Ástralíu og Tete Yengi gerði svipað á hinum endanum.

Ástralía hafnaði í öðru sæti riðilsins og er komin áfram í 32-liða úrslit þar sem liðið mætir því liði sem hafnar í öðru sæti G-riðils. Belgía situr í öðru sæti fyrir lokaumferðina.

Paragvæ er líklegt til að fara áfram sem ein af átta bestu þjóðunum í þriðja sæti. Líklegasti andstæðingurinn í 32-liða úrslitum er Þýskaland.

Úrslit og markaskorarar:

Bandaríkin 2 - 3 Tyrkland
1-0 Auston Trusty ('3 )
1-1 Arda Güler ('10 )
1-2 Orkan Kökcü ('31)
2-2 Sebastian Berhalter ('49 )
2-3 Kaan Ayan ('90 )

Ástralía 0 - 0 Paragvæ
Bandaríkjamenn fagna öðru marki sínu

Bandaríkjamenn fagna öðru marki sínu

Canon

Mynd: EPA

Úr leik Ástralíu og Paragvæ

Úr leik Ástralíu og Paragvæ

Canon

Mynd: EPA

Ástralir höfnuðu í öðru sæti og Paragvæ mun væntanlega fara áfram

Ástralir höfnuðu í öðru sæti og Paragvæ mun væntanlega fara áfram

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.