Fotbolti.net
26.06.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM um helgina - Úrslitastund í riðlunum og 32-liða úrslitin fara af stað

Englendingar mæta Panama

Englendingar mæta Panama

Canon

Mynd: EPA

Riðlakeppni heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó lýkur um helgina og fara þá 32-liða úrslitin af stað.
Það verður nóg um að vera á HM um helgina þegar riðlakeppnin klárast og 32-liða úrslitin fara af stað.

Klukkan 00:00 aðfaranótt laugardags mætast Grænhöfðaeyjar og Sádi-Arabía í gríðarlega mikilvægum leik um sæti í 32-liða úrslitum.

Grænhöfðaeyjar eru með tvö stig í H-riðli en Sádi-Arabía eitt. Það kemur sér vel fyrir Grænhöfðaeyjar að Úrúgvæ þarf að mæta Evrópumeisturum Spánar í hinum leik riðilsins. Spánn er á toppnum með fjögur stig, Úrúgvæ og Grænhöfðaeyjar eru með tvö stig og Sádi-Arabía eitt.

Klukkan 03:00 klárast G-riðillinn þar sem mikil spenna er fyrir lokaumferðina. Egyptar, sem mæta Írönum, eru á toppnum með fjögur stig á meðan Íran og Belgía eru með tvö. Nýja-Sjáland er á botninum með eitt stig.

Laugardagskvöldið sjálft verður svo sérstaklega áhugavert. Englendingar mæta Panama á sama tíma og Króatía spilar við Gana. Leikirnir hefjast klukkan 21:00.

England er á toppi L-riðils með fjögur stig, líkt og Gana sem er í öðru sæti. Króatía er í þriðja sætinu með þrjú stig en Panama er án stiga á botninum og úr leik.

Síðustu leikirnir í K-riðli hefjast klukkan 23:30. Kólumbía, sem er komin í 32-liða úrslitin, mætir Cristiano Ronaldo og félögum í Portúgal. Portúgal er í öðru sæti með fjögur stig en Kongó er í þriðja sæti með eitt stig. Úsbekistan er án stiga á botninum.

Riðlakeppninni lýkur síðan klukkan 02:00 aðfaranótt sunnudags. Argentína, sem er komin áfram með fullt hús stiga, spilar við Jórdaníu á meðan Austurríki mætir Alsír. Það má búast við miklum breytingum hjá Argentínumönnum.

Austurríki og Alsír berjast á meðan um annað sætið í J-riðli, en báðar þjóðir eru með þrjú stig fyrir lokaumferðina.

Klukkan 19:00 á sunnudag hefjast síðan 32-liða úrslitin þegar Suður-Afríka mætir Kanada á SoFi-leikvanginum í Los Angeles.

Leikir helgarinnar:

Föstudagur (aðfaranótt laugardags):

G-riðill
03:00 Nýja-Sjáland - Belgía
03:00 Egyptaland - Íran

H-riðill
00:00 Grænhöfðaeyjar - Sádí Arabía
00:00 Úrúgvæ - Spánn

Laugardagur (og aðfaranótt sunnudags):

L-riðill
21:00 Króatía - Gana
21:00 Panama - England

K-riðill
23:30 Kólumbía - Portúgal
23:30 Kongó - Úsbekistan

J-riðill
02:00 Argentína - Jórdanía
02:00 Alsír - Austurríki

Sunnudagur:
19:00 Kanada - Suður-Afríka
Kanada spilar gegn Suður-Afríku í 32-liða úrslitum

Kanada spilar gegn Suður-Afríku í 32-liða úrslitum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.