Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. maí 2021 18:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skotland: Arna Sif skoraði með skalla
Arna Sif í leik með Þór/KA.
Arna Sif í leik með Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Sif Ásgrímsdóttir var á skotskónum fyrir Glasgow City í skosku úrvalsdeildinni í dag.

Arna Sif, sem er sterkur varnarmaður, hefur staðið sig mjög vel í Skotlandi og skoraði með skalla í dag. Hún sagði nýlega frá því að hún hefði verið að kenna Skotunum að skalla.

Glasgow vann leikinn 3-1 en fram kemur á vef Morgunblaðsins að Arna hafi meiðst í leiknum.

Þórs/KA vegna er það vonandi ekki alvarlegt en Arna er í láni hjá Glasgow frá Akureyrarfélaginu. Hún átti að missa af fyrstu þremur leikjum liðsins í Pepsi Max-deildinni en hvort þeir verði fleiri eftir þessi meiðsli, það verður að koma í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner