Fotbolti.net
02.06.04 - 10:25
Magnús Már Einarsson

Dickov til Blackburn Rovers (Staðfest)

Dickov til Blackburn Rovers (Staðfest)
Canon
Blackburn Rovers hefur keypt skoska framherjann Paul Dickov frá Leicester City á aðeins 100 þúsund pund. Hinn 31 árs gamli Dickov hafði klásúlu í samningi sínum sem að gerði honum kleift að fara fyrir svona litla upphæð þar sem að Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Dickov sem að er 31 árs skoraði fjórtán mörk fyrir Leicester á tímabilinu og var markahæstur í liðinu en Everton, Middlesbrough og Portsmouth börðust einnig við Blackburn um að kaupa hann.

"Við höfum gert allt sem að við möguleag getum til að fá Paul til að vera áfram. Paul hringdi í mig í gær til að segja mér að hann færi til Blackburn og að sjálfsögðu eru allir óánægðir." Sagði Micky Adams stjóri Leicester.

Talið er að Graeme Souness stjóri Blackburn muni láta Dickov vera frammi ásamt Jon Stead á næsta tímabili og láta Andy Cole sitja á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.