Fotbolti.net
02.06.12 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Vladimir Petkovic ráðinn stjóri Lazio (Staðfest)

Vladimir Petkovic ráðinn stjóri Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lazio hefur ráðið Bosníumanninn Vladimir Petkovic sem nýjan knattspyrnustjóra liðsins.
Innan við mánuður er síðan Petkovic tók tímabundið við stjórnartaumunum hjá Sion í Sviss, en honum var frjálst að yfirgefa félagið.

Hinn 48 ára gamli stjóri tekur við af Edy Reja, sem yfirgaf Lazio við lok nýafstaðinnar leiktíðar þar sem liðið endaði í fjórða sæti Serie A og rétt missti af þáttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.

Petkovic hefur ekki reynslu af stórum liðum, en hann hefur lengst af stýrt liðum í Sviss og þar lengst af sem stjóri Young Boys árin 2008 - 11.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.