02.06.12 - 11:21
Daníel Freyr Jónsson
Paul Lambert ráðinn stjóri Aston Villa (Staðfest)

Paul Lambert stýrir Aston Villa á næstu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur staðfest ráðningu Paul Lambert sem stjóra liðsins.
Lambert, sem er 42 ára gamall Skoti, kemur frá Norwich þar sem hann náði merkilegum árangri.
Hann stýrði Norwich í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í vetur eftir að hafa komið félaginu upp um tvær deildir á tveimur tímabilum.
Hjá Aston Villa tekur hann við af samlanda sínum, Alex McLeish, sem rekinn var fyrir skömmu, en Villa endaði leiktíðina einungis tveimur stigum frá fallsæti.
Lambert var ólmur í að taka við Aston Villa og vildi hann segja upp starfi sínu hjá Norwich á dögunum en stjórn félagsins hafnaði þeirri beiðni. Villa hefur því nú líklega komist að samkomulagi um greiðslu við Norwich fyrir stjórann.

Heimild: Heimasíða Aston Villa