Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
fimmtudagur 14. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
þriðjudagur 19. mars
Engin úrslit úr leikjum í dag
þri 02.jún 2020 17:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 5. sæti: Víkingur R.

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að bikarmeistarar Víkings endi í 5. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Víkingur endar í 5. sæti samkvæmt spá okkar.

Óttar Magnús Karlsson
Óttar Magnús Karlsson
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason kom til Víkings í júlí í fyrra
Kári Árnason kom til Víkings í júlí í fyrra
Mynd/Fótbolti.net - J.L.
Víkingar fagna marki gegn Stjörnunni í vikunni
Víkingar fagna marki gegn Stjörnunni í vikunni
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingvar Jónsson gekk til liðs við Víking í vetur
Ingvar Jónsson gekk til liðs við Víking í vetur
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Helgi Guðjónsson kom frá Fram í vetur
Helgi Guðjónsson kom frá Fram í vetur
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen fyrirliði Víkings
Sölvi Geir Ottesen fyrirliði Víkings
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Víkingur R. 93 stig
6. Stjarnan
7. KA 55 stig
8. Fylkir 49 stig
9. ÍA 44 stig
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: Víkingur vann sinn fyrsta stóra titil síðan árið 1991 þegar liðið vann Mjólkurbikarinn í fyrra. Í Pepsi max-deildinni var falldraugurinn á sveimi í Víkinni framan af móti en eftir góðan endasprett enduðu Víkingar í 7. sæti.

Þjálfari - Arnar Gunnlaugsson: Eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari með Loga Ólafssyni þá tók Arnar við liði Víkings fyrir síðasta tímabil. Hann setti handbragð sitt strax á liðið og Víkingur spilaði skemmtilegan fótbolta á síðasta tímabili. Liðið hefur bætt sig jafnt og þétt undir stjórn Arnars og ætlar sér í toppbaráttuna í sumar.

Styrkleikar: Víkingar hafa skemmtilega blöndu af reynsluboltum og ungum og sprækum leikmönnum. Ásamt spennandi ungum leikmönnum sem gætu tekið skref upp á við á milli ára eru miklir leiðtogar á borð við Sölva Geir Ottesen og Kára Árnason. Leikmenn vita sín hlutverk upp á tíu og eru komnir ennþá betur inn í leikstílinn en í fyrra.

Veikleikar: Víkingsliðið vill vera mikið með boltann og sækja á mörgum mönnum sem gerir það veikt fyrir skyndisóknum en liðið á í basli með að verjast þeim. Föst leikatriði hafa einnig verið smá vandamál en liðið hefur hávaxna leikmenn og ætti að geta lagað það. Reynslumestu menn liðsins eru einnig þeir elstu þannig aukið leikjaálag gæti haft sitt að segja.

Lykilmenn: Kári Árnason og Óttar Magnús Karlsson. Kári kom til Víkinga um mitt sumar í fyrra og þessi reyndi landsliðsmaður mun nú ná heilu tímabili með liðinu. Það munar um minna. Óttar Magnús kom líka í júlí í fyrra og hefur raðað inn mörkum síðan þá. Gæti barist um gullskóinn í deildinni.

Gaman að fylgjast með: Ingvar Jónsson var frábær þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari árið 2014. Eftir atvinnumannaferil á Norðurlöndunum er hann mættur aftur í Pepsi Max-deildina. Spennandi verður að sjá hann í marki Víkings í sumar.

Spurningarnar: Verður Kári á miðjunni eða í vörninni? Nær Óttar Magnús að halda áfram að raða inn mörkum? Er liðið orðið nægilega gott til að berjast um Íslandsmeistaratitilinn?

Völlurinn: Heimavöllur hamingjunnar stóð svo sannarlega undir nafni í fyrra. Gervigras var lagt á Víkingsvöll í fyrra og margir skemmtilegir leikir voru spilaðir í Fossvoginum á síðasta tímabili. Áhorfendur geta síðan sólað sig í stúkunni á góðviðris dögum.

Þjálfarinn segir - Arnar Gunnlaugsson
„Ég er ósammála þessari spá svo ég tali hreina íslensku. Við verðum pottþétt ofar en þetta. Markmiðið er klárlega að berjast um titilinn. Þetta verður epic mót. Það er sjaldan sem ég man eftir svona mörgum liðum sem eiga góða möguleika. Stundum tala lið með rassgatinu og þykjast eiga góðaa möguleika en það eru sex lið sem eiga séns á titlinum, ef menn hitta á réttan dag og sleppa með meiðsli. Stjarnan og FH hafa verið undir radarnum í vetur en ef þú rýnir í liðin, þjálfarana og umgjörðina þá eru þetta frábær lið. Breiðablik er að mínu mati með sterkari hóp en í fyrra þegar þeir náðu 2. sæti og spila mjög skemmtilegan fótbolta. Valur er með frábæran hóp og frábæran þjálfra og þetta var slys hjá þeim í fyrra. Síðan ertu með meistarana í KR þannig að þetta verður veisla."

Komnir:
Atli Barkason frá Fredrikstad
Helgi Guðjónsson frá Fram
Ingvar Jónsson frá Viborg
Kristall Máni Ingason frá FC Kaupmannahöfn á láni

Farnir:
Guðmundur Andri Tryggvason til Start (Var á láni)
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson í Kórdrengi
Gunnlaugur Hlynur Birgisson í Þrótt R.
James Mack
Kwame Quee í Breiðablik (Var á láni)
Rick Ten Voorde

Fyrstu fimm leikir Víkings:
14. júní Víkingur - Fjölnir
20. júní KA - Víkingur
29. júní Víkingur - FH
4. júlí KR - Víkingur
8. júlí Víkingur - Valur

Sjá einnig:
Hin hliðin - Júlíus Magnússon
Hin hliðin - Logi Tómasson
Hin hliðin - Atli Barkarson

Leikmenn Víkings sumarið 2020:
1 Ingvar Jónsson
3 Logi Tómasson
6 Halldór Smári Sigurðsson
7 Erlingur Agnarsson
8 Sölvi Geir Ottesen
9 Helgi Guðjónsson
10 Óttar Magnús Karlsson
11 Dofri Snorrason
12 Emil Auðunsson
13 Viktor Örlygur Andrason
14 Bjarni Páll Runólfsson
15 Kristall Máni Ingason
16 Þórður Ingason
17 Atli Barkarson
18 Örvar Eggertsson
19 Þórir Rafn Þórisson
20 Júlíus Magnússon
21 Kári Árnason
22 Ágúst Eðvald Hlynsson
23 Nikolaj Hansen
24 Davíð Örn Atlason
25 Bjarki Björn Gunnarsson
27 Tómas Guðmundsson
28 Halldór Jón Sigurður Þórðarson
30 Arnór Ingi Kristinsson
31 Isaac Owusu Afriyie
77 Atli Hrafn Andrason

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner
banner