Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 16:08
Kári Snorrason
Meiri líkur á að Kári sjái frændur sína saman í landsliðinu en í Víkingi
Sölvi og Davíð eru frændur Kára Árnasonar.
Sölvi og Davíð eru frændur Kára Árnasonar.
Mynd: Samsett mynd
Kári Árnason.
Kári Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð fagnar marki sínu gegn KA.
Davíð fagnar marki sínu gegn KA.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Hinn átján ára Sölvi Stefánsson gekk til liðs við Íslandsmeistara Víkings í síðustu viku. Sölvi er stór og stæðilegur átján ára hafsent sem er að stíga upp úr krossbandaslitum.

Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason, yfirmann fótboltamála hjá Víkingi, sem er jafnframt frændi Sölva. Kári er einnig frændi Davíðs Helga Aronssonar sem er á láni frá Víkingi hjá Keflavík.

Sjálfur segir Kári drauminn að sjá þá spila saman sem hafsentapar en býst þó ekki við því að það gerist fyrr en í A-landsliðinu eftir nokkur ár.

„Þeir eru nú báðir frændur mínir í sitthvorri ættinni. Það er draumur hjá mér að þeir fái að spila saman, annar þeirra örvfættur (Davíð) og hinn réttfættur (Sölvi). Ég held að það verði nú í A-landsliðinu eftir nokkur ár frekar en hér. Þeir munu báðir fara fljótlega aftur út.“

Fyrsta verkefni Kára var að selja Sölva
Sölvi er uppalinn Víkingur en var seldur út til AGF fyrir þremur árum. „Það var eitt það fyrsta sem ég gerði (sem yfirmaður fótboltamála Víkings) var að selja hann í AGF. Hann er bara óheppinn og lendir í slæmum meiðslum, fer í uppskurð í ágúst í fyrra og byrjar ekkert í fótbolta fyrr en í ágúst,“ segir Kári og heldur áfram.

„Það er langbest að svona ungir leikmenn fái eitt ár til þess að jafna sig eftir krossbandaslit. Hann verður löggildur meðlimur Víkings 17. júlí en við munum aldrei ýta á hann, hann er á þannig aldri að hann verður að ná sér 100% góðum til þess að forðast bakslag. Þetta er gríðarlega flottur leikmaður og karakter. Jákvæður, skemmtilegur og brosmildur. Hann er með gríðarlega hátt þak og er einn af okkar allra flottustu hafsentum.“

Möguleiki á að kalla Davíð til baka
Eins og áður sagði er Davíð á láni hjá Keflavík. Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu sem hefur komið mörgum skemmtilega á óvart í Bestu deildinni.

Víkingur á möguleika á því að kalla Davíð til baka frá Keflavík þegar glugginn opnar en Kári sér ekki fram á að þurfa að gera það nema ef meiðsli herja á hafsenta Víkings.

„Ef það gerist eitthvað hjá okkur þá sjáum við til. Við höfum ekkert verið voðalega heppnir með meiðsli. Á tímapunkti var bara einn hafsent klár. Svo er náttúrulega Viktor (Örlygur Andrason), maðurinn sem getur spilað allar stöður, sem reddar okkur.

Tarik er fínn þarna líka en auðvitað viljum við hafa fleiri en einn hafsent kláran. Ef allir fjórir eru klárir þá er ólíklegt að við köllum hann til baka því ég vil að hann spili eins mikið og hægt er,“
segir Kári að lokum.
Slapp
banner