Fotbolti.net
02.07.04 - 07:01
Magnús Már Einarsson

Valencia kaupir Fiore og Corradi frá Lazio (Staðfest)

Stefano Fiore.

Stefano Fiore.

Canon
Valencia hefur keypt miðjumanninn Stefano Fiore og sóknarmanninn Bernardo Corradi frá Lazio á um ellefu milljónir punda samanlagt. Kaupverðið er þó í raun meira því að Lazio skuldaði Valencia ennþá pening eftir að liðið keypti miðjumanninn Gaizka Mendieta í júlí 2001. Mendieta kostaði Lazio um 27,9 milljónir punda en ítalska liðið er nú loksins að klára að borga Valencia. Ekki er hægt að segja að Lazio hafi gert góð kaup því að Mendieta fann sig ekki hjá félaginu og hefur verið í láni hjá Barcelona og Middlesbrough á seinustu leiktíðum.
Fiore sem að er 29 ára skrifaði undir þriggja ára samning við Valencia með möguleika á framlengingu um eitt ár en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Valencia. Hann hefur spilað 35 landsleiki með Ítalíu og skorað tvö mörk og lék meðal annars alla leikí Ítala á EM í sumar.

Corradi sem að er 28 ára skrifaði undir fjögurra ára samning við Valencia en hann vakti fyrst athygli hjá Chievo Verona eftir að hafa leikið með nokkrum liðum í neðri deldum á Ítalíu. Hann var einu sinni í byrjunarliði Ítala á EM í sumar en hann hefur skorað tíu mörk á seinustu tveimur leiktíðum með Lazio þar sem að hann hefur verið síðan að hann kom frá Inter árið 2002.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.