Fotbolti.net
02.07.04 - 15:42
Magnús Már Einarsson

Bjarni Guðjónsson til Coventry (Staðfest)

Bjarni til vinstri, í baráttu við leikmann WBA.

Bjarni til vinstri, í baráttu við leikmann WBA.

Canon
Bjarni Guðjónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við enska liðið Coventry sem að leikur í næstefstu deild en Bjarni skirfaði undir samninginn eftir að hafa samið við þýska liðið Bochum um að losna undan samningi þaðan. Bjarni sem að er 25 ára og hefur verið í landsliðshópi Íslands var í láni hjá Coventry á síðustu leiktíð og þótti standa sig vel. Bjarni sem að er oftast á hægri kantinum er eins og flestir vita bróðir Þórðar og Jóhannes Karl Guðjónssona en þeir eru synir Guðjóns Þórðarsonar fyrrum stjóra Stoke og Barnsley.
Bjarni mun hefja æfingar fyrir næsta tímabil með Coventry á mánudag en gott er að framtíð þessa Skagamanns liggur nú fyrir en hún hefur verið óljós í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.