Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 02. júlí 2022 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Palhinha verður leikmaður Fulham á sunnudaginn
Joao Palhinha spilaði 12 leiki með portúgalska landsliðinu í fyrra.
Joao Palhinha spilaði 12 leiki með portúgalska landsliðinu í fyrra.
Mynd: EPA

Fulham er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir miðjumanninn Joao Palhinha frá Sporting CP.


Fulham hafði betur í kapphlaupi við Wolves um þennan öfluga varnartengilið sem hefur spilað 77 leiki með Sporting á síðustu tveimur árum.

Palhinha vann sér byrjunarliðssæti í portúgalska landsliðinu í fyrra og var valinn í lið ársins í portúgölsku deildinni.

Fabrizio Romano greinir frá því að Palhinha muni fullkomna félagaskiptin til Fulham á morgun, sunnudag, og verði svo kynntur í vikunni.

Fulham borgar 22 milljónir evra fyrir Palhinha og er auk þess að reyna við Andreas Pereira, Kevin Mbabu og Zaidu Sanusi. Félaginu hefur ekki tekist að ljúka neinum félagaskiptum á fyrri hluta sumarsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner