Fotbolti.net
14.09.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Segja rangt að Maldini hafi verið undir áhrifum fíkniefna

Maldini skoraði sigurmarkið gegn Atalanta.

Maldini skoraði sigurmarkið gegn Atalanta.

Canon

Mynd: EPA

Daniel Maldini, leikmaður Cagliari og sonur ítölsku goðsagnarinnar Paolo Maldini, lenti í umferðarslysi í Mílanó í gærmorgun.

Maldini var undir áhrifum áfengis undir stýri. La Gazzetta dello Sport sagði að hann hefði ekki aðeins verið fullur heldur einnig undir áhrifum fíkniefna.

Cagliari sendi frá sér yfirlýsingu og segir þetta ekki rétt, lyfjapróf hefðu leitt í ljós að hann hafi ekki verið á fíkniefnum. Þá segir félagið að Maldini snúi aftur til æfinga síðdegis í dag.

Þessi 24 ára leikmaður skoraði sigurmark Cagliari í 2-1 sigri gegn Atalanta á laugardeginum en leikmenn fengu svo frídag á sunnudeginum.
Ítalía: Atalanta tapaði óvænt á heimavelli
TENGT EFNI

Ítalía: Atalanta tapaði óvænt á heimavelli

Maldini ók Porsche Carrera bíl sínum með þrjá farþega og lenti í árekstri við Volkswagen Golf bifreið. Lögregla og sjúkrabílar mætu á staðinn og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum þar sem hann var fullur undir stýri.

Sem betur fer voru meiðsli í slysinu aðeins minniháttar. Maldini fór á sjúkrahús en var útskrifaður í gær.

Fréttin hefur verið uppfærð
Daniel Maldini.

Daniel Maldini.

Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Cagliari6+313
5Milan6+612
6Juventus6+411
7Como6+311
8Napoli6+410
9Frosinone6+210
10Atalanta609
11Sassuolo608
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.