Aron Elís: Leikurinn fyrir Evrópu alltaf eitthvað bras
Auglýsing

Oliver Ekroth fagnar Aroni Elís sem skoraði tvö mörk í dag

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur bar sigur úr býtum í spennuleik gegn KA á Víkingsvelli í kvöld. Leikar enduðu 3-2, heimamönnum í vil eftir sigurmark á 95. mínútu. Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, skoraði tvö mörk í dag og ræddi við Fótbolta.net að leik loknum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KA
„KA menn voru mjög öflugir í dag. Við byrjuðum vel, komumst í 1-0. En svo kemur smá værukærð og við förum að vera of óvandvirkir. Þeir komast inn í þetta, komast 1-2 yfir og það tekur bara smá tíma að koma til baka," sagði Aron.
Víkingur lenti undir um miðbik fyrri hálfleiks eftir að hafa komist yfir eftir fimm mínútna leik. Það er í fyrsta skipti á tímabilinu sem liðið missir niður forskot.
„Við höfum að talað um að leikurinn fyrir Evrópu hafi alltaf verið eitthvað bras. Hvort menn séu komnir aðeins lengra en þeir eiga að vera, ég veit það ekki. En bara mikilvægt að fá einn svona sigur, þetta hafa verið sigrar sem við siglum heim eftir að vera tveimur til þremur mörkum yfir en við þurftum að sækja þennan."
Næsti leikur Víkings er í forkeppni Meistaradeildarinnar. Ungversku meistararnir, Györi ETO, mæta í Víkina næstkomandi þriðjudag.
„Gríðarlega erfitt verkefni, það er bara gaman að fá alvörunni leik og sjá hvar við stöndum á móti þessu liði. Það verður full stúka, þetta er bara spennandi," bætti Aron við.