Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 02. ágúst 2021 16:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn brjálaðir út í Levy - Ekki hægt að kenna Kane um
Mynd: EPA
Harry Kane er aðal umræðuefni dagsins á samfélagsmiðlum. Hann skrópaði á fyrstu æfinguna sína hjá Tottenham í sumar.

Hann hefur lengi verið orðaður við Man City og sögur segja að hann sé búinn að segja stjórn Tottenham að hann vilji fara.

Stuðningsmenn Tottenham hafa farið hamförum á samfélagsmiðlum í dag en flestir skilja Kane en eru brjálaðir út í eiganda liðsins, Daniel Levy.

Fólk telur að Kane sé ekki sáttur með hversu lítinn metnað Levy hefur til að styrkja hópinn í sumar. Það hafa hinsvegar komið fréttir um að City sé nálægt því að kaupa Jack Grealish, ef það gengur muni félagið ekki reyna að fá Kane.
Athugasemdir