02.09.04 - 18:41
Elvar Geir Magnússon
Dilevski til Tottenham (Staðfest)




Tottenham hefur keypt ástralska unglingalandsliðsmanninn Spase Dilevski. Þessi 19 ára miðjumaður náði að ganga frá félagaskiptum sínum á síðustu stundu fyrir lokun félagaskiptagluggans. Hann hefur leikið fyrir hollenska stórliðið PSV Eindhoven og þýska liðið RW Essen.
"Við erum hæstánægðir með að fá hann. Spase var sá yngsti í landsliði Ástralíu á Ólympíuleikunum." sagði Frank Arnesen yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham. Við greindum frá því fyrir mánuði síðan að hann væri staddur hjá sínu gamla félagi, PSV Eindhoven, til að ganga frá kaupunum á ilevski en þau hafa nú gengið í gegn.
"Hann mun byrja í varaliðinu en við þurfum líklega ekki að bíða lengi eftir því að hann stígi þaðan upp."
"Hann mun byrja í varaliðinu en við þurfum líklega ekki að bíða lengi eftir því að hann stígi þaðan upp."
