Man Utd gerði ekki tilboð í Martínez - Martínez hefur ekki áhuga á að fara til Tyrklands - Bayern vildi Lookman
   þri 02. september 2025 18:00
Elvar Geir Magnússon
Ræddu um að sækja Welbeck aftur til Man Utd
Mynd: EPA
Manchester United skoðaði það að fá Danny Welbeck aftur til félagsins, ellefu árum eftir að hann yfirgaf það.

Welbeck er 35 ára sóknarmaður Brighton sem kom upp úr hinni frægu United akademíu. Hann var drjúgur fyrir Brighton á síðasta tímabili en United hefur verið í vandræðum með markaskorun.

The Athletic segir að United hafi talið að bakgrunnur Welbeck sem fyrrum akademíuleikmaður félagsins hefði getað hjálpað hópnum.

Sir Jim Ratcliffe meðeigandi Manchester United var þó ekki hrifinn af hugmyndinni og taldi það rangt að semja við Welbeck á þessum tímapunkti ferils hans.
Athugasemdir
banner