02.12.04 - 09:15
Kristján Örn í Brann (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson


Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson
Kristján Örn Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu sem lék með KR í efstu deild í sumar og þar á undan með KA, gekk í gærkvöld frá þriggja ára samningi við norsku bikarmeistarana í Brann.
Kristján mun gangast undir læknisskoðun bráðlega og fer svo alfarinn til Noregs eftir áramót þar sem æfingar hjá Brann hefjast um miðjan janúar. Hjá liðinu hittir Kristján fyrir annan íslenskan varnarman, Ólaf Örn Bjarnason.
