Fotbolti.net
02.12.20 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Axel Kári semur við ÍR

Axel Kári semur við ÍR
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Axel Kári Vignisson hefur framlengt samning sinn við ÍR í Breiðholti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
„Goðsögnin góða Axel Kári Vignisson búin að skrifa undir.
Axel legend hefur leikið yfir 200 mótsleiki með #Hvítbláahjartað á kassanum og gengið gegnum súrt og sætt með félaginu,"
segir í tilkynningu frá ÍR.

„Sturluð staðreynd: Axel Gerir tilkall til myndalegasta leikmans félagsins frá upphafi."

Axel Kári er þrítugur varnarmaður sem hefur leikið með ÍR lengst af á ferli sínum, en hann á einnig leiki fyrir Víking Reykjavík, HK og Keflavík.

ÍR hafnaði í níunda sæti 2. deildar, en Arnar Hallsson tók við liðinu eftir að tímabilinu lauk.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.