Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. desember 2021 20:40
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: De Gea lá óvígur eftir samstuð við Fred
David De Gea lá í markinu eftir samstuð við Fred
David De Gea lá í markinu eftir samstuð við Fred
Mynd: EPA
Emile Smith Rowe var að koma Arsenal yfir gegn Manchester United á Old Trafford en markið þykir afar umdeilt. David De Gea, markvörður United, lá óvígur í markinu eftir hornspyrnu.

Arsenal fékk hornspyrnu á þrettándu mínútu. Boltinn kom inn í teiginn og var hreinsaður burt en á sama tíma datt De Gea. Enginn leikmaður Arsenal var nálægt en brasilíski miðjumaðurinn Fred steig á ökklann á markverðinum.

De Gea datt því og lá óvígur. Smith Rowe fékk boltann fyrir utan teiginn og lét vaða á markið og skoraði.

Í fyrstu var haldið að markið myndi ekki standa en það stóð og virtist Martin Atkinson, dómari, ekki hafa flautað áður en boltinn fór í netið. Þessu var mótmælt en það hafði lítið upp á sig. Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér



Athugasemdir
banner
banner
banner