Fotbolti.net
03.02.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Hadji til Espanyol (Staðfest)

Hadji til Espanyol (Staðfest)
Canon
Mustapha Hadji miðvallarleikmaður Aston Villa var í gær lánaður til spænska félagsins Espanyol til loka tímabilsins. Að þeim tíma loknum hefur spænska félagið kost á að kaupa leikmanninn sem kom til Villa frá Coventry árið 2001. Hadji sem er 32 ára gamall hefur áður leikið á spáni með Deportivo La Coruna árin 1997 til 1999. Hann var fyrir nokkrum árum kjörinn leikmaður ársins í Afríku en hann hefur einnig leikið í Frakklandi með Nancy og með Sporting Lisbon í Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.