03.02.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Reina til Hertha Berlin (Staðfest)




Botnlið þýsku Bundesligunnar, Hertha Berlin, hefur keypt sóknarmanninn Giuseppe Reina frá Borussia Dortmund. Þessi reynslumikli leikmaður náði ekki að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliði Dortmund og hefur nú skrifað undir 18 mánaða samning við Herthu. Vonast er til að Reina muni skora mörk sem hjálpi liðinu að forðast fall úr deildinni. "Þetta er mikil áskorun fyrir mig. Ég er viss um að liðið geti haldið sæti sínu í deildinni." sagði Reina.
