03.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Sasa Ilic til Celta Vigo (Staðfest)




Celta Vigo hefur fengið serbneska miðjumanninn Sasa Ilic að láni frá Partizan Belgrad út þessa leiktíð. Ilic sem er 26 ára á 19 landsleiki að baki fyrir Serba en hann þykir skora mjög mikið af miðjumanni að vera. Celta rétt náði að semja við Ilic áður en að félagsskiptaglugginn lokaði í gær en liðið á einnig möguleika á að kaupa Ilic í júní og fá hann þá til að semja til fimm ára.
Ilic mun styrkja Celta sem á í fallbaráttu í La Liga en þar sem að hann hefur spilað með Partizan í Meistaradeildinni getur hann ekki spilað með Celta sem mætir Arsenal í 16-liða úrslitum keppninnar.
