Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 03. mars 2021 07:30
Aksentije Milisic
Phil Jones frá út tímabilið?
Mynd: Getty Images
Meiðslavandræði Phil Jones hjá Manchester United ætla engan endi að taka.

Hann hefur átt við hné vandræði að stríða og nú er ljóst að hann gæti verið frá út tímabilið vegna þess.

Jones hefur ekki spilað fyrir United síðan í janúar mánuði á síðasta ári, en þann leik vann United 6-1 gegn Tranmere Rovers í FA bikarnum. Jones gerði sér lítið fyrir og skoraði í þeim leik.

Leikmaðurinn fór í aðgerð á hné í júní mánuði og Ole Gunnar Solskjær, stjóri liðsins, vonaðist eftir því að Jones yrði klár í slaginn í desember.

Endurkoma hans frestaðist hins vegar trekk í trekk og nú er ljóst að möguleiki er á að Jones spili ekki eina einustu mínútu á þessu tímabili. Bakslag hefur komið í endurhæfingu hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner