03.04.23
Bjóst kannski ekki við því að þetta myndi gerast svona fljótt
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Sindri leikur í stöðu miðvarðar en hann lék upp alla yngri flokkana með Breiðabliki. Er hann var að ganga upp úr 2. flokki þá ákvað hann að halda á vit ævintýranna í New York í Bandaríkjunum. „Ég tók alla yngri flokkana í Breiðabliki, við urðum Íslandsmeistarar tvisvar í 2. flokki en klúðruðum því á elsta árinu mínu. Það hefði verið fínt að taka þetta þrisvar í röð, það hefði verið geggjað. Svo fer ég út í skóla til Bandaríkjanna í New York."
Blanda af stærðfræði og hagfræði
Sindri lagði stund á nám við Fordham háskólann í Bandaríkjunum og lærði þar 'math econ' sem er eins konar blanda af stærðfræði og hagfræði.
„Ég vissi að ég myndi sjá eftir því ef ég myndi ekki prófa þetta allavega."

Sindri í leik með Stjörnunni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég heyrði í Brynjar Benediktssyni hjá Soccer & Education og fór á einhvern fund. Svo allt í einu heyrði einhver skóli í mér og ég kíkti út eina helgi í mars áður en ég fór og leist mjög vel á þetta. Ég ákvað að skella mér á þetta. Ég vissi að ég myndi sjá eftir því ef ég myndi ekki prófa þetta allavega. Svo var þetta bara mjög skemmtilegt."
„Ég var að læra 'math econ' sem er svona blanda á milli stærðfræði og hagfræði. Það var alveg smá flókið, sérstaklega þegar maður var að klára þetta hérna heima í tölvunni á meðan Covid var. Það reddaðist einhvern veginn. Ég er svona þannig gæi að ég vil mæta í tímanna. Um leið og þú situr heima í tölvunni þá ertu kannski meira að opna .net eða eitthvað þannig. Það er auðveldara að týna sér."
„Skólinn er með svæði á Manhattan og í Bronx í New York. Allt íþróttasvæðið er á Bronx svæðinu þannig að ég var mest þar. Við æfðum alltaf níu á morgnana og svo var skóli eftir það. Maður var búinn um þrjúleytið og þá var það bara tíu mínútur í lest og þú varst kominn niður í bæ. Það var endalaust hægt að skoða. Ég var alveg duglegur að gera það."

Í leik með Stjörnunni á undirbúningstímabilinu í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mættur fyrir átta í vinnuna og er búinn um fjögur. Ég næ að mæta um hálftíma fyrir æfingu og þá getur maður hitað aðeins betur upp. Þetta er ekki að taka neinn tíma frá boltanum sjálfum. Þetta er æðislegur vinnustaður, gott fólk og alls konar verkefni. Þetta er mjög góð blanda og ég er heppinn með vinnu."
Geggjaður tími í Augnabliki
Á meðan Sindri var í skóla þá spilaði hann með Augnabliki í 3. deildinni. Þegar þú ert í skóla í Bandaríkjunum þá færðu ekki mikinn tíma heima og þú nærð ekki að æfa mikið hér á landi. Sindri naut tímans vel í Augnabliki og var ekki að hugsa mikið um að spila í efstu deild þá.
„Allir vinirnir voru í Augnablik og það var margt sem var að draga mig þangað. Við vildum alltaf fara upp í 2. deildina en það gekk ekki. Við vorum frekar nálægt því nokkur sumur í röð. Maður er að koma heim í maí og fara aftur út í lok júlí. Þetta eru tveir eða þrír mánuðir sem maður hefur heima á Íslandi. Mér fannst mikilvægt að vera að spila sem mest," segir Sindri.

Sindri hér í leik með Augnabliki.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Jökull er mjög góður þjálfari og pælir mikið í allskonar hlutum sem tengjast fótboltanum. Það sést á æfingum og þegar maður talar við hann. Ég hef ekkert nema góða hluti að segja um hann," segir Sindri og bætir við:
„Þetta var geggjaður tími í Augnabliki, og geggjuð ferðalög með strákunum. Við vorum að reyna að spila skemmtilegan bolta. Það var frábært að vera þarna."
Bjóst kannski ekki við því að þetta myndi gerast svona fljótt
Það vakti svo athygli þegar Sindri tók stökkuð upp í Bestu deildina fyrir síðasta tímabil. Hann fékk þá símtal frá Jökli sem var þá kominn í Stjörnuna.

Jökull Elísabetarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Jökull var alltaf að hvetja mig að fara á hærra stig."
„Ég bjóst kannski ekki við því að þetta myndi gerast svona fljótt," segir Sindri og heldur áfram: „Ég hélt að ég myndi kannski fara í 2. deild eða Lengjudeildina fyrst."
„Jökull færði sig yfir og ég fékk símtal frá honum stuttu eftir það. Ég kíkti á nokkrar æfingar og leist mjög vel á þetta. Jökull var alltaf að hvetja mig að fara á hærra stig. Það kom mér því ekkert svakalega á óvart að fá símtalið frá honum."
„Ég byrjaði að mæta á æfingar hjá Stjörnunni í nóvember og fór í gegnum undirbúningstímabilið með liðinu. Það tók nokkrar vikur að finna tempóið, þetta er miklu hærra tempó en í 3. deild. Þegar ég var kominn á rétta tempóið þá fannst mér þetta í góðu lagi."

Í baráttunni við Alexander Má Þorláksson.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hann segist hafa verið sáttur með sína frammistöðu í fyrra. „Ég get alveg sagt að ég hafi verið sáttur með frammistöðu mína. Það var auðvitað smá stress áður en tímabilið byrjaði en þetta var bara fínt. Ég er sáttur með liðið, hvernig við vorum að spila og allt það."
„Ég setti mér engar væntingar, tók bara einn leik í einu og einn dag í einu. Það gekk bara vel og ég reyndi að halda mínu striki. Það er gott að hafa góða menn í kringum sig, klárlega. Ég var að spila mitt fyrsta tímabil í liðinu en það voru sex eða fleiri ungir strákar að gera það líka. Þetta var reynslulítið lið og við lærðum helling."
Stjörnuliðið er frekar ungt og voru fjórir leikmenn liðsins í U19 landsliðinu sem tryggði sér farseðilinn á lokakeppni EM á dögunum.

Stjarnan fagnar marki á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Ég tek þetta alltaf frá degi til dags
Þegar Sindri er spurður út í það hvort hann sé með drauma um atvinnumennsku, þá segir hann: „Ég tek þetta alltaf frá degi til dags; ég mæti á æfingu og geri mitt besta og sama með leikina. Ég sé bara hvert það tekur mig. Ég vil ekkert horfa neitt alltof langt fram í tímann og tek þetta bara frá degi til dags."
„Ég held að það hafi verið skemmtilegasti leikurinn í fyrra, algjör rússíbani."
Hann er spenntur fyrir tímabilinu sem er framundan, en Stjörnunni er spáð um miðja deild.

Í æfingaferð á Spáni.
Mynd: Stjarnan
„Það er vika í fyrsta leik á móti Víking. Það var geggjaður leikur í fyrra, 5-4 eða hvernig hann fór. Vonandi vinnum við þann leik, en það verður skemmtilegur leikur. Ég held að það hafi verið skemmtilegasti leikurinn í fyrra, algjör rússíbani. Ég er mjög spenntur."
Að lokum var Sindri spurður að því hvað hann væri helst að gera þegar hann er ekki í fótboltanum eða í vinnunni og sagði hann þá:
„Mér finnst gaman í golfi og reyni að taka hring þegar ég hef tíma. Það var kannski ekki mikill tími í fyrra til að spila. Ég hef mikinn áhuga á fótbolta og golfi íþróttalega séð. Ég æfði eitthvað smá í grunnskóla. Ég náði sveiflunni og svo hætti maður og fór í fótboltann. Ég og Jóhann Árni (Gunnarsson) erum duglegir að kíkja í bása eða að fara í golfhermi. Annars eru ekkert það margir í golfi í Stjörnunni. Ég, Jóhann og Danni Lax kannski," sagði þessi skemmtilegi leikmaður að lokum.

Eggert Aron Guðmundsson og Sigurbergur Áki Jörundsson, tveir af ungum leikmönnum Stjörnunnar sem hjálpuðu U19 landsliðinu að komast á EM á dögunum.
Mynd: Stjarnan

'Ég setti mér engar væntingar, tók bara einn leik í einu og einn dag í einu. Það gekk bara vel og ég reyndi að halda mínu striki'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Ég og Jóhann Árni erum duglegir að kíkja í bása eða að fara í golfhermi'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik gegn Víkingum á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

