Fotbolti.net
03.05.12 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Þrír ungir Þórsarar í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Þrír ungir Þórsarar í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: HSN

Dalvík/Reyni bættist liðstyrkur fyrir átökin í sumar en gær komu til liðsins þeir Arnar Geir Halldórsson (1992), Alexander Már Hallgrímsson (1992) og Stefán Daði Bjarnason (1993).
Allir koma þessir leikmenn frá Þór Akureyri. Arnar Geir er varnarmaður, Alexander Már er sóknarmaður og Stefán Daði er miðjumaður.

Arnar Geir og Alexander Már eru lánaðir til Dalvíkur/Reynis en þeir eru samningsbundir Þór til tveggja ára í viðbót.

Dalvík/Reynir leikur í 2. deildinni en liðinu er spáð tíunda sæti af þjálfurum og fyrirliðum.

Meðfylgjandi mynd: frá vinstri Alexander, Stefán Garðar Níelsson formaður knattspyrnudeildar D/R, Arnar. Aftan við þá stendur Stefán Daði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.