03.06.04 - 10:10
Magnús Már Einarsson
WBA fær danskan varnarmann (Staðfest) (Uppfært)




WBA er byrjað að styrkja sig fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og hefur liðið keypt Martin Albrechtsen frá FC Copenhagen fyrir 2,7 milljónir punda en WBA hefur aldrei borgað svo mikið fyrir leikmann. Hinn 24 ára gamli Albrechtsen á þrjá landsleiki að baki með Dönum en hann vann tvöfalt með Copenhagen á nýliðni leiktíð, það er deild og bikar.
Albrechtsen sagði að tilboðið frá WBA hefði verið svo spennandi að ekki hefði verið hægt að hafna því. Hann mun eflaust berjast við stöðu í vörninni við Lárus Orra Sigurðsson sem að reyndar verður ekki meira með fyrr en á nýju ári vegna meiðsla.
