03.06.04 - 11:17
Magnús Már Einarsson
Bentley lánaður til Norwich (Staðfest)

David Bentley framherji Arsenal hefur verið lánaður til Norwich. Bentley sem að er í U-21 árs landsliði Englendinga lék fáa leiki með Arsenal á nýliðnu tímabili en stimplaði sig þó inn með fallegu marki gegn Middlesbrough.
Arsene Wenger vill hinsvegar að kappinn fái reynslu og ákvað því að lána hann til Norwich.
Bentley getur einnig leikið á hægri eða vinstri kanti en hann er annar leikmaðurinn sem að Norwich fær á tveimur dögum en í gær kom skoski markvörður Paul Gallacher til liðsins. Norwich er því byrjað að styrkja sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en liðið sigraði ensku fyrstu deildina á nýliðnu tímabili.