03.06.04 - 14:10
Magnús Már Einarsson
Lauth til Hamburg SV (Staðfest)




Hamburg SV hefur keypt þýska framherjann Benjamin Lauth frá 1860 Munchen á um 2.9 milljónir punda. Lauth sem að er 22 ára á fimm landsleiki að baki með Þjóðverjum og væri eflaust í hóp þeirra á EM ef að hann hefði ekki fótbrotnað fyrir skömmu.
1860 Munchen féll úr þýsku Bundesligunni og því var nokkuð ljóst að Lauth myndi yfirgefa liðið. Hann mun leiða sóknarlínu HSV á næstu leiktíð ásamt Emilie Mpenza sem að kom til liðsins frá Standard Liege fyrir skömmu.
