03.06.04 - 18:38
Hafliði Breiðfjörð
Veron til Inter Milan (Staðfest)

Afhverju þarf ég að fara?


Afhverju þarf ég að fara?

Argentínumaðurinn Juan Sebastian Veron er farinn til Inter Milan á eins árs lánssamningi frá Chelsea. Veron sem gekk í raðir Chelsea frá Manchester United síðasta sumar var mikið frá á nýliðinni leiktíð vegna meiðsla á baki. Vegna þess spilaði hann ekkert frá 19. nóvember til 10. apríl. Veron er vanur ítalska boltanum en hann hefur áður leikið þar með Parma og Lazio. Hann var keyptur frá Lazio til Manchester United sumarið 2001 og vann með Manchester United enska titilinn.
