Kjartan Már Kjartansson gæti farið á láni frá Aberdeen á næsta tímabili.
Stephen Robinson, stjóri liðsins, segir við Press and Journal Kjartan vera framtíðarleikmann sem þurfi meiri spiltíma.
Kjartan gekk til liðs við Aberdeen frá Stjörnunni síðasta sumar og skrifaði hann undir fjögurra ára samning við félagið.
Skoski miðillinn segir Aberdeen hafa greitt um 250 þúsund pund fyrir Kjartan, sem samsvarar um 41 milljón króna.

Kjartan þurfti að bíða í sex mánuði eftir fyrsta leik sínum fyrir Aberdeen en kom inn á sem varamaður í 3-1 tapi gegn Celtic í desember.
„Kjartan er 19 ára og enn ungur strákur. Hann er framtíðarverkefni og á ekki að vera að byrja leiki viku eftir viku fyrir Aberdeen. Hann er einn af mörgum leikmönnum sem við þurfum annað hvort að lána út eða gefa meiri spiltíma,“ sagði Robinson.
Alls byrjaði Kjartan þrjá leiki á sínu fyrsta tímabili og kom fimm sinnum inn á sem varamaður.