Fotbolti.net
03.08.04 - 08:15
Hafliði Breiðfjörð

Aston Villa fær Drobny á láni út leiktíðina (Staðfest)

Aston Villa fær Drobny á láni út leiktíðina (Staðfest)
Canon
Tékkneski varnarmaðurinn Vaclav Drobny gekk í gær í raðir Aston Villa frá Racing Strasbourg á eins árs lánssamningi. Drobny er 23 ára gamall og lék með liðinu á fjögurra leikja æfingaferð í Svíþjóð og en í kjölfar lánsins er líklegt að Villa muni kaupa leikmanninn.
Drobny var áður fyrirliði U-21 árs liðs Tékka en hann hóf ferilinn með Sparta Prag áður en hann fór til Chmel Blsany. Hann gekk í raðir Strasbourg árið 2002 og spilaði með þeim 25 leiki á síðustu leiktíð í frönsku 1. deildinni.

Hann var ekki með Tékkum á EM í sumar en spilaði sinn fyrsta A-landsleik gegn Japan í apríl.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.