Fotbolti.net
03.08.04 - 07:22
Hafliði Breiðfjörð

Ujfalusi til Fiorentina (Staðfest)

Ujfalusi til Fiorentina (Staðfest)
Canon
Tékkneski landsliðsvarnarmaðurinn Tomas Ujfalusi gekk í gærkvöld í raðir Fiorentina á Ítalíu eftir að hafa undirgengist læknisskoðun. Ujfalusi kemur frá Hamburg í Þýskalandi en kaupverðið er talið vera um 7,5 milljónir Evra (5 milljónir punda).
Hann er 26 ára gamall og kemur til liðs við Fiorentina sem var að vinna sér sæti í Seria A eftir nokkurra ára fjarveru eftir að félagið var dæmt niður vegna gjaldþrots. Hann kemur í kjölfar Enzo Maresca frá Juventus og Hidetoshi Nakata frá Parma til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.