Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 03. ágúst 2020 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sheffield United vill fá Cash
Mynd: Getty Images
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Nottingham Forest hafi hafnað 10 milljón punda tilboði frá Sheffield United í varnarmanninn Matty Cash.

Southampton, AC Milan og West Ham voru orðuð við Cash í janúar og hafnaði Nottingham 12 milljón punda boði frá Hömrunum undir lok gluggans.

Cash hefur verið lykilmaður í liði Nottingham síðustu tímabil og spilar yfirleitt sem hægri bakvörður. Hann er fjölhæfur og getur einnig leikið á miðjunni.

Cash á 23 ára afmæli í vikunni og á 141 leik að baki fyrir Nottingham Forest. Félagið er talið vera reiðubúið til að selja hann fyrir 15 milljónir. Southampton og West Ham eru sögð vera að undirbúa tilboð.
Athugasemdir
banner
banner